Íslenska
Skilmálar vefverslunar
Verð á heimasíðu er birt með fyrirvara um villur. Postprent áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna mistaka við verðlagningu eða ef vara reynist uppseld.
Afhending og afgreiðslutími
Pantanir eru afgreiddar eins fljótt og hægt er. Vara er ekki send fyrr en greiðsla hefur borist. Pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar.
Ábyrgðarskilmálar
Postprent ábyrgist þær skemmdir sem orðið geta við pakkningu vöru. Sú ábyrgð nær ekki yfir skemmdir sem verða við meðhöndlun þriðja aðila, svosem póstþjónustu.
Postprent ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send úr vefverslun Postprent og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Afhendingartími er á bilinu 2-6 vikur
Skilað og skipt
Kaupandi hefur 14 daga frá því að varan berst til að fá vöruna endurgreidda. Kaupanda ber að sjálfsögðu að skila vörunni óskemmdri á heimilisfangið Skipholt 70, 105 Reykjavík og standa straum af sendingarkostnaði. Þetta ákvæði gildir þó t.d. ekki í tilvikum þar sem vara eða þjónusta hefur verið sérsniðin að kröfum neytandans eða innsigli hafa verið rofin.
Verð
Athugið að verð á heimasíðunni getur breyst án fyrirvara.
Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.
Lög um varnarþing
Rísi ágreiningur milli aðila um efni þessara viðskipta eða vegna brota á þeim má bera viðkomandi mál undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu. Ef allt þrýtur er heimilt að reka mál vegna þessa fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur skv. ákvæðum laga nr. 91/1991.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður fer eftir staðsetningu viðtakanda. Viðmið um sendingarkostnað til Íslands er 600 krónur að viðbættu evrópspóstgjöld, umsýslugjald og virðisauki af prent- og sendingarkostnaði
Verðskrá Íslandspósts má nálgast hér https://www.postur.is/einstaklingar/verdskra/
Ef rekja má skemmdir til meðhöndlunar Postprent á vöru er varan endurgreidd eða ný send í staðin sé þess unnt.